Pöntunarsími: 773-0100

Vínsmakkarinn

Á þessum afar vandaða DVD kennsludisk er Stefán Guðjónsson, einn fremsti vínþjónn landsins til margra ára og meðal annars framreiðslumaður ársins 2004, að leiða þig í gegnum einföld skref til að bæta kunnáttu þína við val á víni, glösum og öðru er tengist vínmenningu.

 

Vínsmakkarinn er DVD diskur fyrir alla sem hafa áhuga á víni.  Diskurinn inniheldur upplýsingar og fróðlek fyrir þá sem eru að byrja að læra um vín og fyrir lengra komna sem vilja læra meira.  Fjallað er á einfaldan og skýran hátt um vinsælustu vínframleiðslulöndin í dag og helstu svæði þeirra, lýst hvernig vínþrúgur bragðast, besta aðferðin við að opna kampavín, matur og vín og margt fleira.

 

Stefán Guðjónsson er einn fremsti vínþjónn landsins, unnið margar vínþjónakeppnir hérlendis og verið í fremstu röð um árabil.   Hann hefur einnig tekið þátt í mörgum keppnum erlendis með góðum árangri, þar af komst hann í úrslit í Nordic Alsace vínþjónakeppninni tvisvar.  Stefán rekur vefsíðu um vín, www.smakkarinn.is, og hefur haldið ótal mörg vínnámskeið bæði fyrir fagfólk og áhugafólk um vín.

Efnisyfirlit:

Vínræktunarlönd

    • Ástralía
    • Bandaríkin
    • Frakkland
    • Ítalía
    • Spánn

 Vínkennsla

    • Opna Kampavín
    • Umhelling
    • Vínmiðar
    • Val á glösum
    • Að geyma vín
    • Horfa, þefa og smakka

Vínþrúgur

    • Hvítvínsþrúgur
    • Rauðvínsþrúgur

Matur og vín

    • Fiskur og kjöt
    • Desert
    • Ostar